Hollendingurinn leigði skútuna á hálfa milljón 21. apríl 2009 11:58
Dópsmyglararnir sem teknir voru nú um helgina staðgreiddu hálfa milljón króna fyrir tveggja vikna leigu á skútunni Sirtaki sem notuð var við smyglið. Þrír þeirra eru þessa stundina í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum þar sem þeir bíða þess að verða úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Varðskipið Týr kom með smyglskútuna Sertaki á Eskifjörð um klukkan átta í morgun. Um borð í Týr voru þeir Rúnar Þór Róbertsson og Árni Hrafn Ásbjörnsson sem grunaðir eru um að hafa staðið að smyglinu. Um borð í Sirtaki var Hollendingur sem fenginn var til að sigla skútunni til Íslands en um borð voru meira 100 kíló af fíkniefnum sem reynt var að smygla til landsins. Hollendingurinn tók skútuna á leigu þann 11. apríl síðastliðinn. Þá gaf hann þær upplýsingar að hann ætlaði að sigla skútunni um Ermarsundið í nokkra daga. Hann staðgreiddi 3000 evrur eða um 500 þúsund íslenskar krónur fyrir tveggja vikna leigu á Sirtaki. Greiðslan var millifærð úr hollenskum banka. Samkvæmt þessu tók það smyglarana eina viku að sigla frá Belgíu og að Papey. Morgunblaðið greinir frá því í dag að skipverjar á íslensku fiskiskipi hafi komið auga á Sertaki snemma á laugardag og látið lögreglu vita og þannig hafi hún komist á sporið um smyglið. Sirtaki kom til hafnar á Eskifirði nú í morgun. Íslendingarnir tveir bíða ásamt Hollendingnum eftir því að verða leiddir fyrir dómara þar sem þeir verða úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Lögreglan hefur tekið flugvél á leigu til að fljúga svo með þremenninga beint á Selfoss þaðan sem þeim verður ekið á Litla-Hraun. Þar eru fyrir þremenningarnir sem tóku við efnunum við Papey og voru svo handteknir í landi seinna um laugadagskvöldið. Þeir voru allir úrskurðaðir á sunnudaginn í gæsluvarðhald til 11. maí.
Papeyjarmálið Tengdar fréttir Von á Sirtaki til hafnar innan tíðar Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni Sirtaki klukkan átta nú í morgunsárið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. 21. apríl 2009 07:23 Smyglskútumenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald á Egilsstöðum Þremenningarnir sem handteknir voru um borð í skútunni Sirtaki um 65 sjómílum fyrir utan Færeyjar í fyrrakvöld eru nú á leið í Héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum. Þeir komu til hafnar á Eskifirði í morgun en voru í kjölfarið fluttir til Egilsstaða. Þar hafa þeir verið í yfirheyrslum og verða síðan færðir fyrir dómara sem tekur ákvörðun um gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Austurlands er von á mönnunum upp úr klukkan 10:00. 21. apríl 2009 09:48 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira
Von á Sirtaki til hafnar innan tíðar Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni Sirtaki klukkan átta nú í morgunsárið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. 21. apríl 2009 07:23
Smyglskútumenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald á Egilsstöðum Þremenningarnir sem handteknir voru um borð í skútunni Sirtaki um 65 sjómílum fyrir utan Færeyjar í fyrrakvöld eru nú á leið í Héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum. Þeir komu til hafnar á Eskifirði í morgun en voru í kjölfarið fluttir til Egilsstaða. Þar hafa þeir verið í yfirheyrslum og verða síðan færðir fyrir dómara sem tekur ákvörðun um gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Austurlands er von á mönnunum upp úr klukkan 10:00. 21. apríl 2009 09:48