Flest gjaldþrot eru í byggingargeiranum Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. mars 2009 06:00 Í nýrri samantekt Hagstofunnar kemur fram að á fyrstu tveimur mánuðum ársins hafi 54 prósent fleiri fyrirtæki orðið gjaldþrota en á sama tíma í fyrra. Fréttablaðið/Vilhelm
Nýjar tölur Hagstofu Íslands sýna yfir 50 prósenta fjölgun gjaldþrota milli ára. Fyrstu tvo mánuði ársins urðu 149 fyrirtæki gjaldþrota, samanborið við 97 fyrirtæki í fyrra. Greining Íslandsbanka segir að gera megi ráð fyrir að gjaldþrotum haldi áfram að fjölga á þessu ári. Þrotahrina sé fram undan. Nær þriðjungur gjaldþrota febrúarmánaðar var hjá fyrirtækjum í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Samantekt Hagstofu Íslands sýnir að gjaldþrot í febrúar voru 36 prósentum fleiri en í sama mánuði ári fyrr. Alls voru 76 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í febrúar, en það er sex fyrirtækjum meira en í janúar. Í febrúar í fyrra voru 56 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. „Gera má ráð fyrir að gjaldþrotum fyrirtækja haldi áfram að fjölga á þessu ári samhliða því sem mikill samdráttur er fram undan í hagkerfinu og eftirspurn og fjárfestingar dragast saman. Spár sem birtar hafa verið um gjaldþrot fyrirtækja gera ráð fyrir að þrotahrina sé fram undan á árinu," segir í samantekt Greiningar Íslandsbanka um málið. Af þeim fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 20 í byggingargeiranum, en það eru 30 prósent heildarfjöldans. Fyrir ári urðu níu fyrirtæki í sama geira gjaldþrota. „Fyrstu tvo mánuði ársins hafa 38 fyrirtæki í byggingariðnaði verið tekin til gjaldþrotaskipta sem er fimmtungur allra gjaldþrota á árinu", bendir Greining Íslandsbanka á og bætir við að fyrstu tvo mánuði síðasta árs hafi 17 fyrirtæki í byggingariðnaði verið tekin til gjaldþrotaskipta. „Fjármálakreppan hefur komið afar illa niður á byggingariðnaði enda hefur fjárfesting dregist mikið saman, meðal annars vegna þess að aðgengi að lánsfé hefur versnað." Fyrir utan byggingariðnaðinn urðu í febrúar 15 gjaldþrot í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum farartækjum og 12 í rekstri gisti- og veitingastaða. „Fyrstu tvo mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 149 en fyrstu tvo mánuði ársins 2008 voru gjaldþrotin 97 sem jafngildir tæplega 54 prósenta aukningu milli ára," segir í samantekt Hagstofunnar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Sjá meira