Handbolti

Jóhann Gunnar og Daníel Berg á leið til Sádi Arabíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhann Gunnar heldur til Sádi Arabíu í fyrramálið.
Jóhann Gunnar heldur til Sádi Arabíu í fyrramálið.

Kassel-strákarnir Jóhann Gunnar Einarsson og Daníel Berg Grétarsson tóku gleði sína á ný í dag er þeir fengu símtal sem mun flytja þá á vit ævintýranna.

„Þetta er búið að gerast ótrúlega hratt. Ég fékk símtal í dag þar sem ég var spurður að því hvort við Daníel værum til í að skella okkur til Sádi Arabíu í þrjár vikur. Ég hélt fyrst að það væri verið að grínast í mér," sagði Jóhann Gunnar við Vísi í kvöld.

Staðan var þannig að lið í Sádi Arabíu vildi fá þá að láni í þrjár vikur rétt á meðan Asian Champions League fer fram. Er það ekki óalgengt að liðin þar í landi styrki sig rétt á meðan þessi keppni fer fram.

„Kassel samþykkti að lána okkur í þrjár vikur. Við fáum flottan pening fyrir þetta og munum búa á glæsilegu hóteli. Það er eiginlega ekki hægt að segja nei við þessu," sagði Jóhann sem var enn að ná sér niður.

„Ég er eiginlega bara að bíða eftir flugmiðunum núna. Svo förum við væntanlega út í fyrramálið. Þetta er einstakt tækifæri sem við gátum ekki hafnað. Þetta verður annað hvort algjört rugl eða algjör snilld. Í það minnsta kem ég til baka með fullt að góðum sögum," sagði Jóhann og hló við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×