HM: Makedónía áfram eftir sigur á Rússum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2009 16:07 Varnarmenn Makedóníu taka hér hart á Aleksey Rastvortsev, leikmanni rússneska landsliðsins. Nordic Photos / AFP
Makedónar gerðu sér lítið fyrir og unnu góðan sigur á Rússum, 36-30, í lokaumferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Króatíu. Þar með er Makedónía komið áfram í milliriðlakeppnina en rússneski björninn, sem er nú orðinn frekar lúinn, situr eftir með sárt ennið. Makedónía er því með sex stig í C-riðli rétt eins og Pólverjar sem mæta heimsmeisturum Þýskalands síðar í dag. Ef Pólland tapar þeim leik tryggir Makedónía sér annað sæti riðilsins en nú þegar er ljóst að það fer með tvö stig með sér í milliriðlakeppnina. Kiril Lazarov, leikmaður RK Zagreb í Króatíu, hefur farið á kostum á mótinu og var engin breyting þar á í dag. Hann skoraði þrettán mörk og var markahæstur í liði Makedóníu en Naumce Mojsovski kom næstur með níu mörk. Lazarov er nú markahæsti leikmaður mótsins með 53 mörk. Konstantin Igropulo var markahæstur Rússa með þrettán mörk en Timur Dibirov kom næstur með átta. Makedónía vann Ísland í undankeppni heimsmeistaramótsins eru án vafa eitt af spútnikliðum mótsins í Króatíu. Einum öðrum leik er lokið á HM í handbolta í dag. Argentína vann 36-16 sigur á Ástralíu í A-riðli. Ástralar töpuðu öllum fimm leikjunum sínum á mótinu með samtals 130 marka mun eða 26 marka mun að meðaltali.
Handbolti Tengdar fréttir HM-samantekt: Óvænt tap Norðmanna Norðmenn naga sig í handarbökin í kvöld eftir að þeir töpuðu óvænt fyrir Serbíu á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Króatíu. 21. janúar 2009 23:45 Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira
HM-samantekt: Óvænt tap Norðmanna Norðmenn naga sig í handarbökin í kvöld eftir að þeir töpuðu óvænt fyrir Serbíu á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Króatíu. 21. janúar 2009 23:45