Ótrúlegir Frakkar eru heimsmeistarar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. febrúar 2009 18:13 Claude Onesta og lærisveinar hans fagna sigrinum í dag. Nordic Photos / AFP
Frakkar unnu sigur á heimamönnum Króata í úrslitum heimsmeistaramótsins í handbolta í dag, 24-19, með góðum endaspretti eftir jafnan leik. Þó svo að Króatar hafi verið afar vel studdir af áhorfendum á heimavelli í Zagreb gerðist það sem flesta grunaði - að Frakkar voru bara of sterkir. Frakkar skoruðu fimm af síðustu sex mörkum leiksins og unnu fimm marka sigur, 24-19. Króatar höfðu þó forystuna í hálfleik, 12-11. Leikurinn var í járnum í 50 mínútur. Þegar tíu mínútur voru eftir komust Frakkar í 19-18 og létu forystuna ekki af hendi eftir það. Vörnin skellti í lás og Thierry Omeyer fylgdi með góðri markvörslu í kjölfarið. Heimamenn áttu hreinlega ekkert svar. Luc Abalo kom Frökkum í þriggja marka forystu, 22-19, þegar þrjár mínútur voru eftir og fyrirliðinn Jerome Fernandez tryggði sigurinn þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka. Þá kom hann sínum mönnum í 23-19. Frakkar voru einfaldlega í sérklassa í þessu móti. Þeir fóru í gegnum fyrstu sjö leiki mótsins án þess að svitna og gátu svo leyft sér að tapa fyrir Króötum í lokaleik milliriðlakeppninnar. Frakkar unnu svo öruggan sigur á Evrópumeisturum Dana í undanúrslitum og fengu ekki almennilega mótspyrnu fyrr en í dag. Króatar fóru eins langt á heimavelli og hægt var en urðu að lokum að játa sig sigraða fyrir betra liðinu. Frakkar er nú ríkjandi heims- og Ólympíumeistarar og geta bætt Evrópumeistaratitlinum í safnið en keppnin fer fram í Austurríki á næsta ári.
Handbolti Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira