Benedikt: Fáum mjög sterkan andstæðing Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. mars 2009 23:22 Benedikt Guðmundsson, leikmaður KR. Mynd/Daníel
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, á von á mjög sterkum andstæðingi í næstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla. KR vann í kvöld öruggan sigur á Breiðabliki og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Næsti andstæðingur KR verður Keflavík nema að Stjarnan vinni oddaleikinn gegn Snæfelli á fimmtudagskvöldið. „Fyrri hálfleikurinn í kvöld var mjög kaflaskiptur en þeir mættu vel stemmdir til leiks og voru flottir í fyrsta leikhluta. Við vorum nokkuð værukærir sem er dæmigert eftir að hafa unnið fyrsta leikinn með miklum mun. Við náðum svo að rétta okkar hlut í öðrum leikhluta og sigurinn var í raun aldrei í hættu eftir það," sagði Benedikt. Hann sagði þó Breiðablik vera með ungt og efnilegt lið. „Þeir voru góðir í kvöld og miklu betri en í fyrsta leiknum. Það var mjög gaman að sjá unga leikmenn í kvöld eins og Hraunar Guðmundsson og Arnar Pétursson. Þetta eru framtíðarblikar og voru algerlega óhræddir í leiknum í kvöld. Það lofar góðu fyrir Breiðablik að eiga svona efnilega leikmenn." Hann segist ánægður með sína menn og segir vel stemmda fyrir komandi átök. „Við erum í virklega góðum gír og hlökkum mikið til næsta leiks. Við gerum okkur grein fyrir því að við fáum mjög sterkan andstæðing í næstu umferð," sagði Benedikt. „Ef við fáum Keflavík sem er líklegast eins og málin standa þá verða það hörkurimmur. Þeir eru búnir að fá sér gríðarlega sterkan bandarískan leikmann og því útlit fyrir að það verði stál í stál í þessum leikjum."
Dominos-deild karla Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira