Viðskiptasmiðjan ætlar að skapa 150 sprotafyrirtæki 3. mars 2009 11:13
Viðskiptasmiðjan - Hraðbraut nýrra fyrirtækja áætlar að skapa 150 ný sprotafyrirtæki, 1.000-3.000 ný störf, um 2-3 milljarða kr. í innlenda og erlenda fjárfestingu. Fyrirtæki Viðskiptasmiðjunnar munu skapa um 3-4 milljarða kr. í gjaldeyristekjur frá 2009-2011. Í tilkynningu um málið segir m.a. að áætlað er að á haustönn 2009 verði um 100 frumkvöðlar skráðir í Viðskiptasmiðjuna. Viðskiptamódelið var upphaflega teiknað upp með það í huga að ná um og yfir 100 frumkvöðlum í Viðskiptasmiðjuna. Áætlað er að ný störf sem sköpuð verða í fyrirtækjum Viðskiptasmiðjunnar verði um 150 talsins á námsárinu 2008-2009. Starfaaukningin gerist með tvennum hætti. Annars vegar eru stofnuð ný fyrirtæki og hins vegar bæta þau sprotafyrirtæki sem þegar er búið að stofna við sig starfsmönnum. Áætlað er að um 150 ný fyrirtæki verði til í Viðskiptasmiðjunni frá 2009-2011 sem og að um 50 eldri fyrirtæki reyni að komast á vaxtarbraut. Miðað við 5-10 starfsmenn á hvert nýtt fyrirtæki og 5-10 nýja starfsmenn fyrir hvert af þeim sem þegar voru stofnuð gætu orðið til 1.000-2.000 ný bein störf. Ef einungis er miðað við 1.000 bein störf má samt áætla að afleidd störf geti orðið á bilinu 1.000-2.400 ef sömu reiknireglur eru notaðar og við útreikninga starfa í stóriðju. Þar af leiðandi eru 1-3 þúsund störf ekki óraunhæf ályktun. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, í samstarfi við viðskiptaengilinn Vilhjálm Þorsteinsson, fjárfesti um 100 milljónir kr. í febrúar 2009. Þar af leiðandi eru íslenskir fjárfestingasjóðir þegar búnir að fjárfesta sem nemur 200-400 milljónum íslenskra króna í fyrirtækjum Viðskiptasmiðjunnar. Þrjú önnur fyrirtæki Viðskiptasmiðjunnar eru í viðræðum við innlenda og erlenda áhættufjárfesta um þessar mundir. Vinir og vandamenn, ásamt frumkvöðlunum sjálfum, eru langstærstu fjárfestar í sprotafyrirtækjum en þaðan kemur um 70-80% af fjármagni sprotafyrirtækja. Ef áætlað er með 10-20 milljóna króna fjárfestingu að jafnaði í 150 nýjum fyrirtækjum er það um 1,5-3 milljarðar króna.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira