"Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið smá grís," sagði Helgi Jónas Guðfinnsson hjá Grindavík í samtali við Stöð 2 Sport þegar hann var spurður út í ævintýralegt skot sem hann setti niður í lok þriðja leikhlutans.
Grindavík vann 85-75 sigur á Snæfelli í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í Stykkishólmi í kvöld og vann því einvígið 3-1.
"Við reyndum að halda hraðanum uppi og pressa stíft eins og okkur tókst ekki almennilega í síðasta leik," sagði Helgi Jónas.
Grindavík mætir KR í lokaúrslitunum og Helgi var spurður hvort hann teldi Grindavík eiga möguleika í því einvígi. "Já auðvitað. Við eigum alltaf möguleika. Við erum búnir að vinna þá einu sinni í vetur," sagði Helgi.