Innlent

Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd/ Stefán

Um tuttugu til þrjátíu manns úr Saving Iceland hópnum mótmæltu fyrir utan lögreglustöðina í nótt. Þeir mótmæltu handtöku á félögum sínum frá því fyrr um daginn fyrir utan iðnaðarráðuneytið. Tveir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina í nótt þar sem þeir fóru ekki að fyrirmælum lögreglu.

Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina. Lögreglan hefur sleppt öllum úr haldi, bæði þeim sem handteknir voru í nótt og þeim sem handteknir voru fyrr í gærdag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×