Sparifé í bönkum ber neikvæða vexti 8. ágúst 2009 05:00 vg þingmenn stjórnmál alþingi Vinstri Grænir framboð Lilja Mósesdóttir
Óverðtryggðir sparireikningar bankanna bera margir ýmist neikvæða raunvexti eða eru mjög nálægt því. Þetta kemur til af því að vextir hafa farið lækkandi á meðan verðbólga hefur haldist í svipaðri prósentutölu. Þetta mun að öllum líkindum ekki breytast mikið, þar sem Seðlabankinn er að reyna að lækka vaxtastigið, að sögn Lilju Mósesdóttur, hagfræðings og alþingismanns. Verðbólgan í júlí var 11,3 prósent samkvæmt tölum Hagstofunnar. Gæta verður þó að því að verðbólga er reiknuð á ársgrundvelli. „Þetta er í sjálfu sér jákvætt á eins miklum samdráttartímum og við erum að ganga í gegnum núna," segir Lilja. „Það er mjög jákvætt að það séu nærri því neikvæðir raunvextir á sparifé vegna þess að það sem samfélagið og efnahagslífið þarf er að fólk eyði peningum ef það á peninga. Og það er fullt af fólki sem á peninga vegna þess að ríkið tryggði innstæður að fullu." Það sé því í sjálfu sér ekki neikvætt fyrir samfélagið þó það sé neikvætt fyrir einstaklinga að peningarnir séu að brenna upp. Pétur H. Blöndal alþingismaður segir það mjög alvarlega stöðu þegar vextir verði neikvæðir, sérstaklega til lengri tíma. Hann segir þó að þótt vextir fari lækkandi sé verðbólgan líka á niðurleið. „Sparnaðarviljinn varð gífurlegur í haust, og það má segja að það hafi orðið algjör umskipti á eyðsluhegðun landans, sem er mjög jákvætt því það var allt of mikil eyðslugræðgi áðan. Svo snerist það yfir í mikinn sparnað sem er kannski fullmikill, því hann veldur nánast stöðvun alls staðar. Það er í þeim skilningi ágætt að vextir séu ekki mjög háir á innistæðum, svo menn séu dálítið fúsir til að eyða þeim. Þetta má hins vegar ekki vara í langan tíma, því þá verður eyðslugleðin of mikil aftur." Vissulega getur fólk lagt fé inn á verðtryggða reikninga bankanna, en þeir hafa langan binditíma.- þeb
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Samskiptum á einkamál.is lauk með 108 milljóna tapi Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Sjá meira