Segir skilanefndarmenn þurfa að fara varlega 8. ágúst 2009 12:11 Gylfi Magnússon
Viðskiptaráðherra segir að skilanefndarmenn þurfi að fara varlega í að taka ákvarðanir sem koma þeim eða skyldum aðilum vel. Hann segir að skilanefndirnar hafi mikil áhrif og völd tímabundið en ekki alveg frítt spil. Flestir skilanefndarmenn eru ýmist lögfræðingar eða löggiltir endurskoðendur og starfa sem verktakar. Tveir þeirra, Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, eru starfsmenn Lögfræðistofu Reykjavíkur og meðal eigenda hennar. Svipaða sögu er að segja af fleiri skilanefndarmönnum, sem margir hverjir eru starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja eða lögfræðistofa sem selja út þjónustu þeirra. Einhverjir starfa þó sjálfstætt. Skilanefndirnar ráða lögfræðistofur í ráðgjöf og annað í tengslum við ýmis verkefni. Sú staða getur því komið upp að skilanefndarmaður vinnur hjá lögfræðistofu sem veitir skilanefndinni lögfræðiráðgjöf. Dæmi um það kom upp í gær þegar DV sagði frá því að skilanefnd Landsbankans hafi falið Lögfræðistofu Reykjavíkur að annast innheimtu á láni Exista. Sveinn Andri Sveinsson, meðeigandi lögfræðistofunnar, vísaði allri gagnrýni um hugsanlegan hagsmunaárekstur í því máli á bug í viðtali við fréttastofu í gær. Sveinn Andri segir að Lárentsínus Kristjánsson, annar eigandi lögfræðistofunnar, hafi vikið sæti á fundi skilanefndar bankans þegar skilanefndin tók ákvörðun um að kaupa þjónustu af lögfræðistofunni. Hann hafi því ekki tekið þátt í þeirri ákvörðun. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagði í samtali við fréttastofu í gær að skilanefndarmenn þurfi að fara varlega í því að taka ákvarðanir sem koma þeim eða skyldum aðilum vel. Hann segir að eftirlit sé með þessu af hálfu Fjármálaeftirlitsins. Ljóst er að skilanefndirnar gæta verulegra fjárhagslegra hagsmuna og koma á vissan hátt að uppbyggingu íslensks efnahagslífs.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira