Um þúsund aðilar hafa fjárfest í Ríkissafni Íslandsbanka 16. apríl 2009 08:11
Ríkissafn Íslandssjóða hefur hlotið góðar viðtökur fjárfesta frá stofnun sjóðsins í byrjun desember, en sjóðurinn fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum með stuttan líftíma og innlánum fjármálastofnana. Um eitt þúsund aðilar, bæði einstaklingar og fagfjárfestar, hafa fjárfest í sjóðnum fyrir rúma 6 milljarða króna. Í tilkynningu segir að fjárfestingastefna Ríkissafnsins sé að fjárfesta 70% af eignum í ríkisskuldabréfum og 30% í innlánum fjármálastofnana. Heimilt er að auka vægi ríkisskuldabréfa upp í 100% og einnig er heimilt að auka vægi innlána í 50% og draga á móti úr vægi ríkisskuldabréfa. „Með fjárfestingu í sjóðnum næst góð eignadreifing milli skuldabréfa með ábyrgð ríkissjóðs og innlána fjármálastofnana. Stuttur meðaltími skuldabréfa þýðir að verð bréfa í sjóðnum sveiflast minna en ella við breytingar á ávöxtunarkröfu bréfanna á markaði. Virk stýring er á sjóðnum og hann hefur sýnt góða ávöxtun frá stofnun, gengi sjóðsins hefur hækkað um 5,8% síðan 5. desember en samsvarar um 18% ávöxtun á ársgrundvelli (m.v. gengisskráningu 8.apríl)," segir í tilkynningunni. Rekstraraðili Ríkissafnsins er Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka. Íslandssjóðir hafa mikla reynslu af rekstri og stýringu ríkisskuldabréfasjóða, en fyrirtækið bar fyrir nafnabreytingu Íslandsbanka nafnið Glitnir Sjóðir.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Sjá meira