Handbolti

Kiel lagði Flensburg í bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron komst ekki á blað í kvöld.
Aron komst ekki á blað í kvöld.

Meistaravörn Kiel í þýsku bikarkeppninni í handknattleik gengur vel því liðið sló út nágranna sína í Flensburg í kvöld og komst um leið í átta liða úrslit bikarkeppninnar.

Lokatölur 26-31 fyrir Kiel. Flensburg leiddi framan af en eftir að Kiel náði undirtökunum í leiknum var aldrei spurning hvernig færi.

Aron Pálmarsson komst ekki á blað hjá Kiel en Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×