Engin viðbrögð frá Framsókn varðandi mál Magnúsar 12. september 2009 15:33 Þingflokkur framsóknarmanna. Mynd/Stefán Karlsson
Engin viðbrögð hafa borist frá forystu Framsóknarflokksins varðandi mál Magnúsar Árna Skúlasonar, fulltrúa flokksins í bankaráði Seðlabankans. Þeir þingmenn sem fréttastofa náði tali af vildu ekki tjá sig um málið. Í frétt Morgunblaðsins í dag kemur fram að Magnús Árni hafði samband við útflutningsfyrirtæki til að koma á viðskiptum með gjaldeyri í gegnum breskt miðlunarfyrirtæki. Það hefur það í för með sér að útflutningstekjur í erlendum gjaldmiðli skila sér ekki á gjaldeyrismarkað hér á landi. Seðlabankinn hafði áður beðið fyrirtækin um að láta af slíkum viðskiptum meðan gjaldeyrishöft eru í landinu. Magnús Árni sagði í hádegisfréttum Ríkisúvarpssins að tilgangurinn hafi ekki verið að höndla með krónur. Hann íhugar að stefna Morgunblaðinu vegna fréttarinnar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann flokksins sem er staddur erlendis, Birki Jón Jónsson varaformann né Gunnar Braga Sveinsson þingflokksformann framsóknarmanna vegna málsins. Auk þess hefur fréttastofa reynt án árangurs að ná í þingmennina Vigdísi Hauksdóttur, Eygló Harðardóttur og Höskuld Þórhallsson. Aftur á móti náði fréttastofa tali af þingmönnunum Sigurður Ingi Jóhannssyni og Siv Friðleifsdóttur. Sigurður var staddur í réttum á Suðurlandi og Siv var í veiði á Norðurlandi. Hvorugt þeirra hafði séð frétt Morgunblaðsins eða heyrt af málinu. Þau vildu því ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Tengdar fréttir Vann gegn markmiðum Seðlabankans Magnús Árni Skúlason, sem situr í bankaráði Seðlabanka Íslands fyrir hönd Framsóknarflokksins, hafði samband við stóran hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan miðlara með gjaldeyri erlendis. Áður hafði Seðlabankinn beðið fyrirtækin um að láta af slíkum viðskiptum. Þetta er fullyrt í Morgunblaðinu í dag. 12. september 2009 09:58 Magnús segi sig úr bankaráði Seðlabankans Hallur Magnússon, einn af forystumönnum Framsóknarflokksins í Reykjavík, vill að Magnús Árni Skúlason, fulltrúi flokksins í bankaráði Seðlabankans, segi af sér. Ekki sé hægt að kenna Framsóknarflokknum um mistök Magnúsar. 12. september 2009 11:28 Magnús íhugar að stefna Morgunblaðinu Magnús Árni Skúlason, fulltrúi Framsóknarflokksins í bankaráði Seðlabankans, sem reyndi að koma íslenskum fyrirtækjum í aflandsviðskipti með gjaldeyri segir að tilgangurinn hafi ekki verið að höndla með krónur. Hann íhugar að stefna Morgunblaðinu vegna umfjöllunar um sig í dag. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 12. september 2009 12:50 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Vann gegn markmiðum Seðlabankans Magnús Árni Skúlason, sem situr í bankaráði Seðlabanka Íslands fyrir hönd Framsóknarflokksins, hafði samband við stóran hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan miðlara með gjaldeyri erlendis. Áður hafði Seðlabankinn beðið fyrirtækin um að láta af slíkum viðskiptum. Þetta er fullyrt í Morgunblaðinu í dag. 12. september 2009 09:58
Magnús segi sig úr bankaráði Seðlabankans Hallur Magnússon, einn af forystumönnum Framsóknarflokksins í Reykjavík, vill að Magnús Árni Skúlason, fulltrúi flokksins í bankaráði Seðlabankans, segi af sér. Ekki sé hægt að kenna Framsóknarflokknum um mistök Magnúsar. 12. september 2009 11:28
Magnús íhugar að stefna Morgunblaðinu Magnús Árni Skúlason, fulltrúi Framsóknarflokksins í bankaráði Seðlabankans, sem reyndi að koma íslenskum fyrirtækjum í aflandsviðskipti með gjaldeyri segir að tilgangurinn hafi ekki verið að höndla með krónur. Hann íhugar að stefna Morgunblaðinu vegna umfjöllunar um sig í dag. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 12. september 2009 12:50