Ríkisstjórnarsamstarfið að veði í Icesave Ingimar Karl Helgason skrifar 11. ágúst 2009 18:55
Össur Skarphéðinsson segir að ef ekki verði meirihluti fyrir Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar, verði stjórnin og einstakir ráðherrar að íhuga stöðu sína. Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þurfa að rökstyðja afstöðu sína í Icesave málinu, fyrir almennum flokksmönnum í Vinstri-grænum, á félagsfundi í kvöld. Fullyrt er að ríkisstjórnin standi og falli með afstöðu þeirra í málinu. Hermt er að slitnað geti upp úr ríkisstjórnarsamtarfi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, fari svo að Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og tveir þingmenn aðrir greiði ekki atkvæði með öðrum stjórnarþingmönnum, með Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Ögmundur segir að Icesave málið snúist um að hlaða ekki skuldaklafa á þjóðina. Hann finni ríkan vilja í öllum flokkum til að ná sem breiðastri samstöðu um fyrirvara við ríkisábyrgð um Icesave sem tryggi hagsmuni Íslands sem best. Ríkisstjórnin hafi ekki verið mynduð um tiltekna niðurstöðu í Icesave málinu. Heimildarmenn fréttastofu hafa hins vegar miklar áhyggjur af framtíð stjórnarsamstarfsins og nefna sem dæmi að allt íslenskt efnahagslíf sé í gíslingu málsins. Vinstri grænir í Kraganum koma saman á félagsfundi í kvöld. Mikill stuðningur er við frumvarp ríkisstjórnarinnar í hópi stuðningsmanna Vinstri grænna, og segja flokksmenn sem fréttastofa ræddi við í dag, að Ögmundur og Guðfríður verði beðin um að rökstyðja viðhorf sín í málinu. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og samfylkingarmaður, segir stjórnarsamstarfið ekki í hættu, en svo gæti farið að einstakir ráðherrar þurfi að íhuga stöðu sína.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira