Lucas Glover vann á Opna-bandaríska meistaramótinu Ómar Þorgeirsson skrifar 22. júní 2009 17:34 Lucas Glover. Nordic photos/AFP
Bandaríkjamaðurinn Lucas Glover fór með sigur af hólmi á Opna-bandaríska meistaramótinu í golfi sem lauk í dag en hann kláraði lokahringinn á 73 höggum og samanlagt á fjórum höggum undir pari Bethpage Black-vallarins. Phil Mickelson, David Duval og Ricky Barnes voru jafnir í öðru sæti á tveimur höggum undir pari. Fyrir lokahringinn voru Ricky Barnes og Lucas Glover efstir og jafnir á átta höggum undir pari en Ross Fisher og David Duval komu svo næstir á þremur höggum undir pari. Bandaríkjamennirnir Phil Mickelson og Tiger Woods voru vitanlega í sviðsljósinu en þeir voru á tveimur höggum undir og einu höggi undir pari Bethpage Black-vallarins fyrir lokahringinn. Woods fann sig ekki í dag en Mickelson saxaði smátt og smátt á efstu menn og bæði Barnes og Glover gáfu eftir. Fyrir síðustu holurnar stóð baráttan því á milli fimm kylfinga, Barnes, Glover, Duval, Fisher og Mickelson. Glover hafði hins vegar stáltaugar á lokasprettinum og vann frækinn sigur og sinn fyrsta stórtitil á ferlinum. En fram að þessu var besti árangur hans á stórmóti að lenda í tuttugasta sæti á Masters-mótinu árið 2007.
Golf Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Enski boltinn Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira