Svört skýrsla um Hróarskeldubanka gæti nýst Íslendingum 7. ágúst 2009 04:45
Sérstakur saksóknari og forstjóri Fjármálaeftirlitsins telja að nýútkomin skýrsla danskra lögfræðinga um fall Hróarskeldubanka, þar sem líkur eru leiddar að umfangsmiklum lögbrotum stjórnenda, kunni að nýtast við rannsókn mála hérlendis. Hróarskeldubanki féll í faðm danska ríkisins fyrir rétt tæpu ári og í febrúar fyrirskipaði skilanefnd bankans lögfræðirannsókn á störfum fyrrverandi stjórnarmanna og stjórnenda bankans árin fyrir hrun. Lögfræðingarnir hafa nú komist að því að líklega hafi verið framin fjölmörg lögbrot við stjórn bankans, og tína ýmislegt til. Meðal þess má nefna hugsanleg umboðssvik bankastjórans Niels Hansen, sem í skýrslunni er sagður bera höfuðábyrgðina á hvernig fór. Umboðssvik eru refsiverð og snúast um það að maður, í þessu tilfelli bankastjóri, misnoti aðstöðu sína sér og sínum til hagsbóta en umbjóðendum sínum til tjóns. Þá eru nefnd til sögunnar möguleg brot á lögum um hlutafjárútboð - þannig hafi bankinn sjálfur og tengdir aðilar keypt mikið í bankanum í slíkum útboðum. Þá séu vísbendingar um blekkingar í garð Fjármálaeftirlitsins og almennings og auk þess hafi verið brotið gróflega gegn lögum um upplýsingaskyldu til eftirlitsaðila. Sum af þessum brotum kunni að varða við hegningarlög. Þá sé sennilegt að of mikil áhættusækni og óskynsamleg fjárfestingastefna bankans varði við hlutafélagalög. Í samráði við Fjármálaeftirlitið í Danmörku verður ákveðið hvort skaðabótamál verður höfðað gegn gömlu stjórnendum, og hugsanlega refsimál. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segist ekki geta sagt til um hvort þessara tilteknu brota hafi orðið vart hérlendis, en að forvitnilegt væri að skoða skýrsluna. „En við höfum til dæmis séð stórar lánveitingar án veða, lán til að hífa upp gengi hlutabréfa - mjög grófa misnotkun þar - og innherjaviðskipti í stórum stíl." Þegar hafi mörg mál verið send sérstökum saksóknara. „Áður en yfir lýkur verðum við örugglega búin að sjá öll dæmi sem hægt er að hugsa sér," segir Gunnar. Lögin í Danmörku séu mjög sambærileg því sem hér gerist, enda að stórum hluta um staðlaðar evrópskar reglur að ræða. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir vert að kynna sér niðurstöður dönsku rannsóknarinnar og athuga hvort þar sé að finna upplýsingar sem hafi þýðingu fyrir Íslendinga.- sh
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Bauð Pútín að vera „músin“ hans Erlent Fleiri fréttir Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Sjá meira