Innlent

Þúsundir mættar til Dalvíkur

Frá hátíðinni í fyrra
Frá hátíðinni í fyrra Mynd/Fréttablaðið

Þúsundir manna eru þegar komnar til Dalvíkur til að taka þátt í fiskideginum þar á morgun og eru öll tjaldstæði þegar orðin yfirfull. Gestir eru farnir að tjalda, leggja húsbílum sínum utan bæjarmarkanna, en fólk var farið að safnast þar saman strax á miðvikudag.

Lögregla var með vakt á svæðinu í nótt og þurfti hún aðeins tvisvar sinnum að biðja fólk að stilla gleðilátum sínum i hóf, svo aðrir hefðu svefnfrið. Akureyrarlögreglan stöðvaði nokkra ökumenn fyrir of hraðann akstur í Öxnadal í gærkvöldi og voru þeir flestir að flýta sér til Dalvíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×