Innlent

Segir ekkert hafa breyst og ætlar ekki að víkja sæti

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Flosi Eiríksson
Flosi Eiríksson

„Ég sé ekki ástæðu til að víkja sæti þegar logið var að mér," segir Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Fréttastofa spurði hvort hann hafi íhugað að víkja sæti vegna rannsóknar sem stendur yfir á málefnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, þar sem Flosi átti sæti. Flosi segir ekkert hafa breyst síðan hann svaraði spurningunni síðast.

Gunnar I. Birgisson, fyrrum bæjarstjóri Kópavogsbæjar, setti þrýsting á bæjarfulltrúana sem áttu sæti með honum í stjórn LSK um að víkja sæti úr bæjarstjórn, rétt eins og hann gerði, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar segir Gunnar: „Yfirklór og smjörklípur hafa ekkert að segja. Í bæjarstjórn sitja þrír bæjarfulltrúar sem eru í rannsókn hjá lögreglunni. Sá fjórði, undirritaður, taldi rétt og skylt að víkja."

Flosi segist þó ekki hafa lesið greinina og vill því ekki tjá sig um efni hennar beint.

Sömu svör fengust hjá Ómari Stefánssyni, bæjarfulltrúa Framsóknar, sem einnig sat í stjórn LSK. Hann vill í engu svara efni greinar Gunnars, þar eð hann hefur ekki lesið hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×