Innlent

Aflinn dróst saman um nærri helming

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Aflinn dróst verulega saman í fyrra. Mynd/ Vilhelm.
Aflinn dróst verulega saman í fyrra. Mynd/ Vilhelm.
Afli íslenskra skipa nam rúmum 1.283 þúsund tonnum í fyrra, en það er 113 þúsund tonnum minna en í hitteðfyrra, eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Aflaverðmæti nam rúmum 99 milljörðum króna í fyrra og jókst um 24% frá árinu þar á undan, en var 2,1% minna mælt á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, en þar var mest landað uppsjávarafla. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×