Maradona biðst afsökunar á „hendi guðs“ - nokkurn veginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2008 23:37 Markið fræga þar sem Maradona vippaði boltanum yfir Peter Shilton með hendinni. Nordic Photos / Bongarts
Haft er eftir Diego Maradona í viðtali The Sun að hann sjái eftir markinu sem hann skoraði með „hendi guðs" í leik Argentínu og Englands á HM 1986. Enn fremur sagði Maradona að Pele væri „the enemy of all time" - óvinur allra tíma. Mörkin sem Maradona skoraði í umræddum leik eru líklegast frægustu mörk allra tíma. Eitt þar sem hann skoraði með hendinni og viðurkenndi það eftir leik. Hitt eftir að hafa spólað sig í gegnum ensku vörnina frá eigin vallarhelmingi. Maradona hefur aldrei beðist afsökunar á fyrra markinu. Þar til nú, eftir því sem kemur fram í The Sun. „Enskur stuðningsmaður kom upp að mér um helgina og bað mig um eiginhandaáritun. Hann sagði að ég væri goðsögn. Ég varð mjög glaður. Fólkið hér er svo kurteist og gott þrátt fyrir þá sögu sem ríkir á milli landanna okkar." „Ef ég gæti beðist afsökunar og breytt gangi sögunnar myndi ég gera það. En markið stendur enn sem mark, Argentína varð heimsmeistari og ég var besti leikmaður heimsins." Hann sagði ennfremur að eiturlyfjaneysla sín hafi tekið stóran toll af fótboltaferli sínum og hann tjáði sig einnig um kosningu FIFA um leikmann 20. aldarinnar sem fór fram á heimasíðu sambandsins árið 2000. Maradona fékk flest atkvæði en FIFA breytti kjörinu þannig að Pele hlaut viðurkenninguna. Maradona mótmælti og þeir voru báðir heiðraðir. „Það væri ekki hægt að deila um hver besti knattspyrnumaður allra tíma er - ég eða Pele. Allir myndu velja mig," sagði hann. „Pele er óvinur allra tíma." Maradona sagði einnig að Beckham ætti skillið að spila sinn 100. landsleik með Englandi en að hann ætti ekki heima í flokki bestu knattspyrnumanna heims. Hann sagði einnig að Ashley Cole ætti að einbeita sér að fótbolta en ekki kvennafari. Hann gagnrýndi einnig Steve McClaren fyrir að velja Scott Carson fram yfir Paul Robinson fyrir leikinn mikilvæga gegn Króatíu í undankeppni EM 2008 í haust.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira