Viðskipti innlent

Landic að leggja undir sig Kvosina

Fasteignafélagið Landic Property hefur keypt húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar við Aðalstræti 6 og 8 og verður með því langstærsti eigandi atvinnuhúsnæðis í Kvosinni í Reykjavík.

Samningar um kaup húsanna voru undirritaðir um helgina en um er að ræða gömlu Morgunblaðshöllina og hús Tryggingamiðstöðvarinnar þar við hliðina. Um er að ræða meira en fjögur þúsund fermetra af húsnæði eftir því sem segir í tilkynningu Landic. TM mun í kjölfarið færa starfsemi sína annað.

Landi Property á nú umtalsverðar eignir í Kvosinni en auk Aðalstrætis 6 og 8 á félagið Aðalstræti 2, gamla Geysishúsið, Aðalstræti 12, gamla Ísafoldarhúsið og húseignina Aðalstræti 16 þar sem Hótel Reykjavík Centrum er með starfsemi.

„Landic Property á einnig Iðuhúsið við Lækjargötu og mestan hluta húsalengjunnar sunnanmegin við Austurstræti frá Ingólfstorgi að Pósthússtræti. Alþingi er stærsti leigutakinn í þeirri húsaröð. Þá á félagið Pósthússtræti 3 og 5, gamla Pósthúsið, og við Túngötu húseignirnar nr. 6 þar sem Baugur Group er með skrifstofur. Hér eru eingöngu taldar upp eignir Landic Property í Kvosinni, en félagið á mörg önnur hús á miðborgarsvæðinu öllu," segir í tilkynningu Landic.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×