Segir krónuna hafa lækkað miklu meira en efni standa til 28. september 2008 12:25
Krónan hefur lækkað miklu meira en efni standa til að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Hann segir ástandið á alþjóðlegum fjármálamörkuðum vera ótryggt en telur að krónan eigi eftir að styrkjast.Forsætisráðherra fundaði með bankastjórum seðlabankans í stjórnarráðinu í gær og efnhagsráðgjöfum. Krónan hefur fallið hratt að undanförnu og hefur hún aldrei verið veikari. Forsætisráðherra sagðist þó ekki hafa verið að ræða aðgerðir vegna stöðu krónunnar heldur fyrst og fremst verið að kynna sér stöðu mála. „Auðvitað veit ég ekki frekar en hver annar hver þróunin verður. það er annað að krónan er núna miklu verðminni. Hún hefur lækkað miklu meira en raunveruleg efni standa til en menn líta til grunnþátta í okkar efnhagslífi. Hún á eftir að styrkja sig hvort sem það verður á mánudaginn eða eitthvað seinna," sagði Geir.Bankastjórn Seðlabanka Ísland og ríkisstjórnin hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir aðgerðarleysi. Geir vísar þessari gagnrýni á bug. „Menn koma með alls kyns bjargráð af öllu tagi, svona meira og minna út í loftið. stundum finnst manni nú að þeir sem eru að tjá sig um þessa hluti hafi ekki alveg forsendur til þess eða hafi ekki kynnt sér álit til hlítar," sagði hann enn fremur.Geir segir ástandið á alþjóðlegum fjármálamörkuðum vera alvarlegt. Hann telur að fyrirhugaðar björgunaraðgerðir bandaríkjastjórna fyrir þarlenda fjármálamarkaði geti haft verulega þýðingu fyrir heimsmarkaðinn.„Ástandið eins og allir vita er ótryggt og það er mikil óvissa sem meðal annars helgast af því að það er verið að fara með hluti í gegnum Bandaríkjaþing sem geta haft gríðarleg áhrif um heim allan. Það er ekki spurning um að þetta hefur mjög mikið að segja fyrir allan fjármálamarkað heimsins.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira