Eimskip CTG siglir í fyrsta sinn til Ameríku með eigin skip 2. júlí 2008 20:52
Í fyrra hófust tilraunasiglingar frá Nýfundnalandi í Kanada til Rússlands og Evrópu á vegum Eimskip CTG með frysta rækju og loðnu en eftirspurn eftir þessum flutningum er sérstaklega mikil á tímabilinu frá maí til október. Þessum árstíðarsveiflum mætir Eimskip með frystiskipum á þessum leiðum og getur þar af leiðandi boðið útflytjendum í Nýfundnalandi og Nova Scotia þrjá mismunandi flutningsmáta og mikla flutningatíðni. Eigin gámasiglingar á tveggja vikna fresti, frystiskipaflutninga og vikulega frystiflutningsmiðlun. Skip Eimskip CTG, Polfoss og Langfoss hafa annað Nýfundnalandssiglingunum, en Dalfoss er einnig á leiðinni vestur um haf til að anna eftirspurn. Nýju frystiskipin sem félagið hefur fengið afhent á undanförnum árum þykja henta afar vel í þetta verkefni, þar sem skipin eru hraðskreið og geta einnig borið frystigáma. Fullestuð bera skipin um 3000 tonn hvert. Einnig hefur Eimskip CTG sótt inn á Austurströnd Bandaríkjanna til að sinna flutningum á kjúklingi, svínakjöti og kalkúnakjöti til Klaipeda í Litháen. Þaðan mun förmunum vera dreift með bílum og lestum til Hvíta-Rússlands, Úkraínu og Kasakstan. Eimskip CTG rekur 11- 15 frystiskip á hverjum tíma og er floti félagsins sá yngsti í heimi í frysti- og kæliflutningum á sjó. Að sögn Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips, þá eru verkefni á borð við þetta í takt við nýlega boðaðar áherslur. „Innri vöxtur félagsins er með þessu nokkur, þar sem ekki er ráðist í neinar umframfjárfestingar í verkefninu", segir Gylfi og bætir við; „Nýlegur frystiskipafloti Eimskip CTG annar þessum siglingum fyllilega, og gerir okkur kleift að nýta þá fjárfestingu sem við höfum lagt í enn betur en áður."
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent