Vanskil aukast og innheimta erfiðari Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 30. júlí 2008 07:00 „
Það er ekkert leyndarmál að innheimta er erfiðari en áður. Það er miklu meira um að menn þurfi að semja um frest og kröfum fjölgar sem eru sendar til lögfræðings," segir Anna Sigríður Jóhannsdóttir, sviðsstjóri greiðendaþjónustu Intrum. Davíð Benedikt Gíslason, framkvæmdastjóri Momentum, segir að áþreifanlegust séu vanskil stærri fyrirtækja. „Við erum að sjá dæmi að fyrirtæki sem ekki hafa áður verið í lausafjárvandræðum eru komin í vanskil. Áður fyrr höfðu menn ekkert sérstakar áhyggjur þó að greiðslur drægust í einn til fjóra mánuði en nú er farið að herða á innheimtuferlunum því fyrirtækin eru jafnvel sjálf í vanskilum. Peningarnir verða að koma hraðar inn." Róðurinn er að þyngjast hjá fyrirtækjum sem hefur gert það að verkum að innheimta hefur reynst erfiðari en áður. Slíkt hefur keðjuverkandi áhrif og nú virðist sem mörg fyrirtæki séu komin í vanda vegna lágs innheimtuhlutfalls og lausafjárskorts. „Við höfum orðið vör við að greiðslustaða fyrirtækja hafi breyst á undanförnum vikum og mánuðum þannig að fyrirtæki hafi verið að lengja greiðslufrest til sinna birgja. Hvort það sé tímabundið ástand eða hversu lengi það varir er ómögulegt um að segja segir Ágúst Jóhannesson, yfirmaður fyrirtækjasviðs KMPG. Þróunin hefur verið hröð og tala flestir um að vanskil hafi farið stigvaxandi frá áramótum, en hafi þó vaxið mest frá því í vor. Kröfur sem höfðu eindaga í júní fara að öllu jöfnu í innheimtu hjá lögfræðingum eftir verslunarmannahelgina. Það má því gera ráð fyrir að róðurinn eigi enn eftir að þyngjast með haustinu og að gjaldþrotum muni fjölga. Davíð telur að haustið verði erfitt fyrir fólkið í landinu: „Fólk sem hefur misst vinnuna, hefur velt sér áfram á yfirdráttum, sem getur ekki selt eignina sína og er jafnvel búið að veðsetja allt sitt, vandræði þeirra eiga eftir að aukast hratt í kjölfar fyrirtækjanna."
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira