Kaupþing þarf að selja 70 milljarða kr. af gjaldeyri sínum 5. júní 2008 11:52
Greining Glitnis telur að samfara hinum nýju og hertu reglum Seðlabankans um gjaldeyrisjöfnuð þurfi Kaupþing að selja 70 milljarða kr,. af gjaldeyri sínum. Seðlabankinn mun taka upp nýjar reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja í byrjun júlí. Nýju reglurnar kveða á um að misvægi erlendra eigna og skulda má mest nema 10% af eigin fé hverju sinni í stað 30% áður. Eftir sem áður munu fjármálafyrirtæki sem reka umsvifamikla starfsemi erlendis þó hafa heimild til að hafa umfram gjaldeyrisjöfnuð til að verja sig gegn neikvæðum gengisáhrifum á eiginfjárhlutföll. Tilgangur þessara breytinga er að draga úr áhættu og stuðla að virkari verðmyndun gjaldeyris á millibankamarkaði. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Gengi krónunnar hefur hækkað um 0,8% (kl. 11:00) í viðskiptum dagsins. Hækkunina má rekja til reglubreytingar Seðlabankans. Greining telur að miðað við gjaldeyrisjöfnuð bankanna í lok fyrsta ársfjórðungs hafi Landsbanki og Glitnir haldið sig innan 10% gjaldeyrisstöðu af eigin fé en að staða Kaupþings hafi verið stærri en nýju reglurnar heimila. "Miðað við stöðu Kaupþings í lok fyrsta ársfjórðungs má áætla að Kaupþing þurfi að selja nærri 70 ma.kr. af gjaldeyri og kaupa krónur. Þessir útreikningar miðast við einfaldar forsendur og taka til dæmis ekki tillit til skattalegrar meðferðar á hagnaði af gjaldeyrishagnaði," segir í Morgunkorninu Einnig er óvíst hvernig gjaldeyrisjöfnuður bankanna hefur þróast í maí en hugsast getur að einhver bankanna hafi lokað hluta af gjaldeyrisstöðu sinni. Seðlabankinn gefur út yfirlit yfir gjaldeyrisstöðu móðurfélaga bankanna kl. 16 í dag en það gefur innsýn í þróun gjaldeyrisjafnaðar bankanna í maí. Greining segir að það hefði verið heppilegra að Seðlabankinn hefði gefið út áðurgreint yfirlit samhliða tilkynningunni um breytingar á gjaldeyrisjöfnuði til að koma í veg fyrir óþarfa óvissu.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Sjá meira