,,Ég er mjög ánægður" 6. ágúst 2008 21:30 Guðmundur Hauksson er forstjóri SPRON.
Forstjóri Sparisjóðs Reykjavíkurs og nágrennis er afar ánægður með niðurstöðu hlutahafafundar SPRON varðandi fyrirhugaðan samruna við Kaupþing. ,,Ég er mjög ánægður með að þessi áfangi er nú að baki og að tillagan hafi fengið jafn afgerandi stuðning hluthafa," segir Guðmundur Hauksson. Hluthafafundur SPRON samþykkti í kvöld samrunann við Kaupþing með ríflega 80% atkvæða. Talsverður hiti var á fundinum. ,,Það liggur alveg ljóst fyrir að ýmsir hluthafar eru ósáttir. Hlutabréfin hafa lækkað í verði og fólk orðið af einhverjum eignum. Aftur á móti á það auðvitað við hlutahafa nær allra hlutafélaga í landinu," segir Guðmundur. ,,Sumir áttu þessi hlutabréf ekki endilega fjárfestingarinnar vegna og af þeim sökum snertir þetta menn með ýmsum hætti þannig að ég átti alveg von á því að fram kæmu ýmis sjónarmið." Nú eiga bæði Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið eftir að leggja blessun sína yfir samrunann. ,,Eftirlitsaðilarnir fara í gegnum ákveðna vinnu og svo heyrum við hvað þeir hafa að segja," segir Guðmundur sem vildi ekki spá fyrir hversu langan tíma sú vinna taki. Hann á þó von á því að af formlegum samruna verði á haustmánuðum.
Tengdar fréttir Hluthafar í SPRON kjósa um samruna við Kaupþing Mikill fjöldi manns er nú samann kominn á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut þar sem fram fer hluthafafundur SPRON. Þar á að taka fyrir tillögu um sameiningu við Kaupþing. 6. ágúst 2008 16:53 SPRON samþykkir samrunann við Kaupþing Hluthafafundur SPRON samþykkti rétt í þessu samrunann við Kaupþing með ríflega 80% atkvæða. Talsverður hiti var á fundinum. Nú hefur enn einni hindruninni verið rutt úr vegi en bæði Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið eiga eftir að leggja blessun sína yfir samrunann. 6. ágúst 2008 20:42 Talning hafin á hluthafafundi SPRON Talning atkvæða er hafin á hluthafafundi SPRON en eina málið á dagskrá var tillaga um sameiningu við Kaupþing. Tíu hluthafar tóku til máls eftir að Guðmundur Hauksson, framkvæmdastjóri sjóðssins, hafði lokið máli sínu og lýstu flestir yfir megnri óánægju með stjórnina og samrunaferlið. Vísir flytur nánari fréttir af fundinum þegar talning atkvæða liggur fyrir. 6. ágúst 2008 19:00 Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér út rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira
Hluthafar í SPRON kjósa um samruna við Kaupþing Mikill fjöldi manns er nú samann kominn á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut þar sem fram fer hluthafafundur SPRON. Þar á að taka fyrir tillögu um sameiningu við Kaupþing. 6. ágúst 2008 16:53
SPRON samþykkir samrunann við Kaupþing Hluthafafundur SPRON samþykkti rétt í þessu samrunann við Kaupþing með ríflega 80% atkvæða. Talsverður hiti var á fundinum. Nú hefur enn einni hindruninni verið rutt úr vegi en bæði Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið eiga eftir að leggja blessun sína yfir samrunann. 6. ágúst 2008 20:42
Talning hafin á hluthafafundi SPRON Talning atkvæða er hafin á hluthafafundi SPRON en eina málið á dagskrá var tillaga um sameiningu við Kaupþing. Tíu hluthafar tóku til máls eftir að Guðmundur Hauksson, framkvæmdastjóri sjóðssins, hafði lokið máli sínu og lýstu flestir yfir megnri óánægju með stjórnina og samrunaferlið. Vísir flytur nánari fréttir af fundinum þegar talning atkvæða liggur fyrir. 6. ágúst 2008 19:00