Viðskipti innlent

Segja að Baugur geti komið Íslandi til bjargar

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og Gunnar Sigurðsson forstjóri fyrirtækisins segja báðir að fyrirtækið geti staðið af sér þann ólgusjó sem það hefur komist í. Þeir geti jafnvel hjálpað til við að koma Íslandi út úr efnahagsneyðinni sem landið er nú statt í. Þetta segja þeir í samtali við breska blaðið Financial Time.

FT segir að staðan líti betur út núna en áður því að á tímabili hafi litið út fyrir að breska stjórnin myndi gera fjölda eigna Baugs upptækar, þar á meðal hluti í Hamleys og House of Fraser. Fjármálaráðuneytið hefði beitt gagnhryðjuverkalögum til þess að frysta eigur Landsbankans og setja Kaupþing í greiðslustöðvun. Gordon Brown forsætisráðherra sagði jafnframt að mögulega yrðu aðrar eignir gerðar upptækar. Íslensk stjórnvöld hefðu þá staðið uppi með skuldirnar, bresk stjórnvöld eignirnar og Baugur hefði staðið uppi alls laus.

„Það rann upp þarna skelfingardagur á Íslandi þar sem þú hugsaðir, andskotinn, þeir munu líklegast frysta allar eigur Íslendinga í Bretlandi," segir Jón Ásgeir í samtali við Financial Times.

Financial Times segir að það veki athygli hversu miklar skuldir Baugs voru eða um 1 milljarður sterlingspunda sem jafngildi hátt í 200 milljörðum íslenskra króna. Gunnar Sigurðsson segir hins vegar að fjármögnun Baugs hafi verið skynsamleg í ljósi þess að eignir Baugs hafi numið um 1,5 milljörðum punda í lok júní eða hátt í 300 milljarðar íslenskra króna. Vandi fyrirtækisins sé hins vegar sá að eignir Baugs hafa rýrnað að undanförnu.

Jón Ásgeir Jóhannesson varar við því að eignir Baugs verði settar á brunaútsölu. „Að reyna að selja smásöluverslanir fimm mínútum fyrir jól er eins og að reyna að selja jólatré í júlí. Það er ómögulegt," segir Jón Ásgeir.

Financial Times segir að Jón Ásgeir telji sjálfan sig geta orðið bjargvættur Íslendinga. Ef Rikisstjórnin haldi eftir skuldum Baugs og geti jafnframt lagt fram fé til að kaupa nýja hluti geti mögulega verið hægt að nýta gjaldeyri frá bresku verslununum til þess að hjálpa til við að greiða af láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×