Segja að Baugur geti komið Íslandi til bjargar 1. nóvember 2008 11:08 Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og Gunnar Sigurðsson forstjóri fyrirtækisins segja báðir að fyrirtækið geti staðið af sér þann ólgusjó sem það hefur komist í. Þeir geti jafnvel hjálpað til við að koma Íslandi út úr efnahagsneyðinni sem landið er nú statt í. Þetta segja þeir í samtali við breska blaðið Financial Time. FT segir að staðan líti betur út núna en áður því að á tímabili hafi litið út fyrir að breska stjórnin myndi gera fjölda eigna Baugs upptækar, þar á meðal hluti í Hamleys og House of Fraser. Fjármálaráðuneytið hefði beitt gagnhryðjuverkalögum til þess að frysta eigur Landsbankans og setja Kaupþing í greiðslustöðvun. Gordon Brown forsætisráðherra sagði jafnframt að mögulega yrðu aðrar eignir gerðar upptækar. Íslensk stjórnvöld hefðu þá staðið uppi með skuldirnar, bresk stjórnvöld eignirnar og Baugur hefði staðið uppi alls laus. „Það rann upp þarna skelfingardagur á Íslandi þar sem þú hugsaðir, andskotinn, þeir munu líklegast frysta allar eigur Íslendinga í Bretlandi," segir Jón Ásgeir í samtali við Financial Times. Financial Times segir að það veki athygli hversu miklar skuldir Baugs voru eða um 1 milljarður sterlingspunda sem jafngildi hátt í 200 milljörðum íslenskra króna. Gunnar Sigurðsson segir hins vegar að fjármögnun Baugs hafi verið skynsamleg í ljósi þess að eignir Baugs hafi numið um 1,5 milljörðum punda í lok júní eða hátt í 300 milljarðar íslenskra króna. Vandi fyrirtækisins sé hins vegar sá að eignir Baugs hafa rýrnað að undanförnu. Jón Ásgeir Jóhannesson varar við því að eignir Baugs verði settar á brunaútsölu. „Að reyna að selja smásöluverslanir fimm mínútum fyrir jól er eins og að reyna að selja jólatré í júlí. Það er ómögulegt," segir Jón Ásgeir. Financial Times segir að Jón Ásgeir telji sjálfan sig geta orðið bjargvættur Íslendinga. Ef Rikisstjórnin haldi eftir skuldum Baugs og geti jafnframt lagt fram fé til að kaupa nýja hluti geti mögulega verið hægt að nýta gjaldeyri frá bresku verslununum til þess að hjálpa til við að greiða af láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira