Dráttarvextir í 17 ára hámarki 8. júlí 2008 16:36
Nú í byrjun mánaðar hækkuðu dráttarvextir í 26,5% en fram til þess höfðu þeir verið 25% í um eitt og hálft ár samfleytt. Leita þarf aftur til ársins 1991 til að finna hærri dráttarvexti en nú eru. Í nóvembermánuði árið 1991 fóru vextirnir í 27% en voru 30% í október sama ár. Þetta kemur fram í í hálffimm fréttum Kauþings. Þar segir einnig: „Nú hafa dráttarvextir verið að minnsta kosti 20% um 42 mánaða skeið eða frá ársbyrjun 2005. Dráttarvextir eru samtala grunns sem er miðaður við nafnvexti á lánum gegn veði hjá Seðlabankanum og vanefndaálags. Grunnurinn stendur nú í 15,5% en vanefndaálagið er ellefu prósent. Dráttarvextir geta breyst 1 janúar og 1. júlí ár hvert, samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, og gilda þeir vextir næsta hálfa árið þar á eftir. Því munu dráttarvextir standa í 26,5% fram til næstu áramóta þegar þeir verða endurskoðaðir á nýjan leik. Enn herðist róðurinn hjá skuldsettum fyrirtækjum og einstaklingum í því vaxtaumhverfi sem við búum við, einkum hjá þeim sem eru í vanskilum. Dráttarvextir af einni milljón króna eru nú 22.083 krónur á mánuði í stað 20.833 króna í júní. Á móti má benda á að miðað við þær breytingar sem urðu á útlánsvöxtum banka og sparisjóða á fyrri hluta ársins í kjölfar stýrivaxtahækkana fóru yfirdráttarvextir og raðgreiðslusamningar á kreditkortum í sumum tilvikum upp fyrir dráttarvexti. "
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira