Verðmæti TM þriðjungur af tilboði Kaldbaks 24. nóvember 2008 18:52
Eignarhaldsfélagið Kaldbakur vill borga fjörutíu og tvo milljarða króna fyrir Tryggingamiðstöðina sem er þrisvar sinnum meira en virði hennar er talið vera. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir, fyrrum eigandi TM, einnig boðið í félagið en tilboð hennar hljóðaði upp á þrjátíu milljarða. Stoðir skulda Landsbankanum fjórutíu og tvo milljarða vegna kaupanna á TM á síðasta ári. Bæði tilboð Kaldbaks og Guðbjargar eru langt yfir verðmæti Tryggingamiðstöðvarinnar eftir því sem fréttastofa kemst næst. Bókfært eigið fé TM var um mitt árið um 24 milljarðar. Það hefur rýrnað verulega síðan þá, bæði með verðmætarýrnun á norska tryggingafélaginu NEMI sem og með tapi á öðrum fjárfestingum eins og til að mynda Glitni. Heimildir fréttastofu herma að eigið fé Tryggingamiðstöðvarinnar sé ekki mikið yfir tíu milljörðum í dag. Eins og staðan er í dag eru vel rekin tryggingafélög að ganga kaupum og sölum fjórutíu prósent yfir eigið fé eða um fjórtán milljarða í tilfelli TM. En af hverju svona hátt verð fyrir félag eins og Tryggingamiðstöðina? Ein skýringin er sú að með því að bjóða nógu hátt sé hægt að komast einsamall að samningaborði með bankanum og reyna að fá stóran hluta skuldanna afskrifaðar. Önnur skýring er sú að það sé gott að eiga rekstrarfélag með stöðugar tekjur á tímum sem þessum. Þriðja skýringin er að í bótasjóði Tryggingamiðstöðvarinnar eru um fimmtán milljarðar sem kæmu sér vel í þeirri lausafjárkrísu sem nú er uppi. Ekki náðist í Þorstein Má Baldvinsson, stjórnarformann Kaldbaks en Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, ráðgjafi Guðbjargar Matthíasdóttir vildi ekki tjá sig um málið í dag, sagði aðeins að TM væri fyrirtæki í góðum rekstri.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira