Viðskipti innlent

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel í fyrra

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu 2007. Heildarniðurstaða ársins er betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og er fjárhagurinn traustur.

Ársreikningar fyrir árið 2007 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstrarniðurstaða bæjarins var jákvæð um 1.585 milljónir kr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 1.414 milljóna kr. hagnaði á árinu. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1.682 milljónir kr. og handbært fé frá rekstri 1.671 milljónir kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×