Viðskipti innlent

Stjórnvaldssekt á hendur Sundum felld úr gildi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um einnar milljónar króna stjórnvaldssekt á hendur félaginu Sundum vegna ófullnægjandi upplýsingagjafar.

Samkeppniseftirlitið sendi Sundum bréf þann 15. maí í fyrra þar sem óskað var eftir gögnum í tengslum við viðskipti með hlutabréf í Glitni. Sund svöruðu Samkeppniseftirlitinu á þá leið að Sund Holding, sem er dótturfélag Sunda, hefði selt hlut sinn í Glitni banka og því teldi félagið sér því óskylt að svara bréfi Samkeppniseftirlitsins.

Samkeppniseftirlitið ítrekaði gagnabeiðni sína þann 18. júlí og svar barst frá Sundum viku síðar. Samkeppniseftirlitið taldi Sund ekki hafa afhent gögn á réttum tíma og sektaði félagið um eina milljón króna fyrir brot á samkeppnislögum. Þá ákvörðun staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála.

Héraðsdómur komst hins vegar að því að brotalýsing í úrskurði nefndarinnar væri ófullnægjandi þar sem ekki hafi verið ljóst á úrskurðinum um hvaða frest væri að ræða. Var úrskurður áfrýjunarnefdar því felldur úr gildi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×