Útlit fyrir versta hlutabréfaár Kauphallar frá upphafi 30. júní 2008 17:18 MYND/GVA
Greiningardeild Kaupþings segir að ef fram haldi sem horfi á íslenskum hlutabréfamarkaði og árslokagildi Úrvalsvísitölunnar verði hið sama og nú verði um mestu lækkun á einu ári frá því útreikningur hófst árið 1993. Í hálffimmfréttum Kaupþings segir að mesta lækkun á ári hingað til hafi verið árið 2000 þegar Úrvalsvísitalan hopaði um 19,3 prósent frá ársbyrjun til ársloka. Úrvalsvísitalan lækkaði um 13,3 prósent á öðrum ársfjórðungi í ár sem einkum verður rakið til 7,8 prósenta lækkunar í júní, en á fyrsta ársfjórðungi féll vísitalan um fimmtung. Hún hefur því lækkað um 29 prósent það sem af er ári. „Af einstökum félögum eru aðeins þrjú félög sem hafa hækkað í verði frá áramótum sé leiðrétt fyrir arðgreiðslum. Century Aluminum hækkaði langmest eða um 56,7% á fyrstu sex mánuðum ársins en Færeyjabanki hækkaði um 31,7% einkum vegna ríflegrar arðgreiðslu. Sé tekið tillit til gengisbreytinga krónunnar er ávöxtunin þó mun meiri eða um 80% en hlutabréf Færeyjabanka eru skráð í danskri krónu. Alfesca er þriðja félagið með 5,2% hækkun. Félögin á botni verðbreytingalistans eru hins vegar Teymi (-65,5% frá áramótum), Exista (-61,9%) og SPRON (-61,3%), en síðastnefnda félagið er næmt fyrir gengisbreytingum í Existu," segir í hálffimmfréttum Kaupþings. Þar er líka bent á að svipaða þróun megi sjá víða á Vesturlöndum að Rússlandi undanskildu en þar hefur Otob-vísitalan verið jákvæð. Helst má rekja hagstætt gengi Otob-vísitölunnar til þess hve mikið vægi olíuiðnaður hefur innan vísitölunnar.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira