Ótrúlegur endasprettur hjá Þór á Akureyri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. nóvember 2008 21:12 Cedric Isom skoraði 32 stig fyrir Þór í kvöld.
Tveimur leikjum er lokið í Iceland Express deild karla. Þór vann ótrúlegan sigur á Stjörnunni þar sem liðið skoraði síðustu fimmtán stig leiksins og vann tíu stiga sigur. Þá var leikur Keflavíkur og FSu framlengdur. Leikurinn hafði verið jafn allan leikinn en Stjarnan þó skrefi framar. Staðan í hálfleik var 46-43 og hélst sá munur eftir þriðja leikhluta. En þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka hófst ótrúlegur leikkafli hjá Þórsurum. Þeir skoruðu síðustu fimmtán stig leiksins á meðan að ekkert gekk hjá Stjörnumönnum. Lokatölur voru 99-89. Cedric Isom skoraði 32 stig fyrir Þór, tók ellefu fráköst og gaf þrettán stoðsendingar. Jón Orri Kristjánsson kom næstur með 22 stig. Hjá Stjörnunni skoraði Jovan Zdravevski 25 stig og Justin Shouse átján. Kjartan Atli Kjartansson skoraði sextán stig. Þá vann Keflavík góðan sigur á FSu á heimavelli, 99-90. Selfyssingar byrjuðu talsvert betur í leiknum og var staðan eftir fyrsta leikhluta 33-21. Keflvíkingum tókst að minnka þann mun í fimm stig í lok fyrri hálfleiks. Keflvíkingar komust svo yfir í þriðja leikhluta og voru með átta stiga forystu þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. En Selfyssingum tókst að jafna metin á síðustu sekúndu fjórða leikhluta en Tyler Dunaway var þar að verki með þriggja stiga skoti. Keflvíkingar unnu hins vegar framlenginguna örugglega, 13-4. Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur Keflvíkingar með 24 stig og Sigurður Þorsteinsson kom næstur með 21 stig og tólf fráköst. Thomas Viglianco skoraði 21 stig fyrir FSu, Dunaway 20 og Árni Ragnarsson nítján. Keflavík komst upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er með átta stig. Þór er í fimmta sæti með sex stig en FSu og Stjarnan eru bæði með fjögur.
Dominos-deild karla Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira