Viðskipti innlent

Eimskip afskrifar nærri níu milljarða

Gylfi Sigfússon er forstjóri Eimskips.
Gylfi Sigfússon er forstjóri Eimskips.

Eimskipafélag Íslands hefur afskrifað eignarhlut í dótturfélagi sínu, Innovate Holding, í Bretlandi eins og Vísir greindi fyrstur frá í gær. Bókfært virði eignarhluts er 74,1 milljónir evra, jafnvirði nærri níu miljarða króna, sem afskrifaður er að fullu á öðrum ársfjórðungi.

Í tilkynningu frá Eimskipum til Kauphallarinnar segir að unnið sé að sölu félagsins í samstarfi við ráðgjafa í Bretlandi. Innovate sérhæfir sig í hitastýrðum flutningum og geymslum í Bretlandi og starfrækir m.a. um 25 vörugeymslur á 11 stöðum. Eimskip fjárfesti í Innovate á árunum 2006-2007 og á félagið að fullu.

„Markaðsaðstæður í Bretlandi hafa verið erfiðar undanfarna mánuði og nýting vöruhúsa og flutningakerfa verri en búist hafði verið við. Samhliða uppbyggingu Innovate gerði félagið langtímaleigusamninga vegna vöruhúsa og flutningakerfis, en forsendur um nýtingu þeirra hafa ekki gengið eftir. Þá hefur fjármagns- og leigukostnaður félagsins í hlutfalli af tekjum einnig stóraukist og taprekstur gert það að verkum að félagið er of veikburða til að halda áfram starfsemi," segir í tilkynningu Eimskips.

Stjórn Eimskip mun láta framkvæma ítarlega skoðun á því ferli sem viðhaft var við kaupin á Innovate. Fyrrum eigendur Innovate, þeir Stephen Savage, Stephen Dargavel og Peter Osborne, hafa allir látið af störfum og hætt í framkvæmdastjórn Eimskips.

Þá segir Eimskip að í ljósi fyrirsjáanlegs samdráttar í flutningum muni félagið á næstu mánuðum leita leiða til að hagræða í rekstri og aðlaga félagið að breyttum markaðsaðstæðum. Siglingakerfi Eimskips sé sveigjanlegt og einn af helstu styrkleikum þess sé hversu fljótt það geti aðlagað sig að breyttum aðstæðum og munu stjórnendur félagsins skoða þau mál gaumgæfilega á næstu mánuðum.


Tengdar fréttir

Eimskip gæti þurft að afskrifa milljarða

Svo gæti farið að Eimskip þurfi að afskrifa milljarða vegna kaupa sinna á breska fyrirtækinu Innovate Holdings í fyrra. Kaupverð var um tíu milljarðar á núverandi gengi en eftir nánari skoðun reyndist félagið ekki eins öflugt og gert var ráð fyrir í upphafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×