Viðskipti innlent

Forstjóri Moss Bros vonsvikinn með að Baugur hætti við yfirtöku

Phil Mountford, forstjóri bresku fatakeðjunnar Moss Bros, segist vonsvikinn með að Baugur skuli hafa hrokkið úr skaftinu og hætt við yfirtöku á félaginu. Í viðtali við breska blaðið The Independent í dag spáir hann því að horfur á smásölumarkaði vernsi á árinu en þess hefur þegar gætt hjá Moss Bros í minnkandi sölu.

Hann segist búast við enn meiri erfiðleikum og að það eigi við um alla í geiranum. Á fyrstu 19 vikum þessa árs dróst sala hjá Moss Bros saman um 1,5 prósent. Paul Deacon hjá Landsbankanum segir ljóst að Moss Bros, eins og önnur fyrirtæki á smásölumarkaði, sjái fram á erfiða tíma á næstunni. Bankinn spáir fjögurra prósenta sölusamdrætti hjá Moss Bros á yfirstandandi fjárhagsári.

Moundford segir einnig að hann hafi verið "vonsvikinn" með að Baugur sem á 29 prósenta hlut í keðjunni, skuli hafa hætt við fyrirhugaða yfirtöku á félaginu. „Ég er á því að fyrirtæki af þessu tagi eigi að vera í einkaeigu," segir hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×