Viðskipti innlent

Gengi krónunnar aldrei lægra á seinni tímum

Gengi krónunnar heldur áfram að falla og hefur aldrei verið lægra en nú á seinni tímum eða síðan 2003.

Gengisvísitalan hefur hækkað um 0,6% í morgun og hefur gengið því vekist sem því nemur. Gengisvístitalan er komin í 159,7 stig. Hæst fór hún áður í ár í 158,7 stig í mars.

Dollarinn kostar nú rúmlega 80 krónur, evran er komin í 124 krónur, pundið í 156 krónur og danska krónan kostar nú 16,6 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×