Samson eignarhaldsfélag gjaldþrota Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. nóvember 2008 15:16 Ásgeir Friðgeirsson
Það var ekkert inni í félaginu til að mæta skuldbindingum þess, segir Ásgeir Friðgeirsson. Hann er talsmaður Björgólfsfeðga sem eiga Samson. Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði þeim í dag um áframhaldandi greiðslustöðvun. Ásgeir segir að níutíu prósent af eign Samson eignarhaldsfélagi hafi verið 90 milljarðar í Landsbankanum og þegar þeir voru teknir eignarnámi að þá hafi ekkert verið eftir. „Voru einhvern tímann einhverjar líkur á öðru," segir Ásgeir þegar Vísir spyr hann hvort þetta flýti fyrir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. „Það sem er núna að gerast er að nú er það í höndum kröfuhafa að óska eftir gjaldþroti," segir Ásgeir. Hann segir að kröfuhafar hafi ekki getað það hingað til vegna þess að félagið hafi verið í greiðslustöðvun en nú sé það hægt. Tíðindi dagsins breyti hins vegar engu um skuldastöðu félagsins eða afkomu. Ekki er enn ljóst hvaða áhrif fall Samsons hefur á Eimskip. Eignarhaldsfélagið Grettir á stærstan hluta í Eimskip. Björgólfur Guðmundsson er eigandi Grettis. Hluti þess er skráður á Samson en Ásgeir segist ekki vera með tiltækar tölur um það hve mikill sá eignahlutur er nákvæmlega. Samson er jafnframt skráð fyrir tæpu prósenti í Eimskip. Það var þýski bankinn Commerzbank sem fór fram á það við héraðsdóm að kröfu um áframhaldandi greiðslustöðvun yrði synjað. Líklegt er að Commerzbank fari nú þegar fram á að Samson verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Tengdar fréttir Samson synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun Eignarhaldsfélaginu Samson var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þýski bankinn Commerzbank hafði farið fram á synjunina. 4. nóvember 2008 14:21 Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Samson synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun Eignarhaldsfélaginu Samson var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þýski bankinn Commerzbank hafði farið fram á synjunina. 4. nóvember 2008 14:21