Síldarvinnslan með 2,5 milljarða kr. hagnað 28. mars 2008 13:41
Síldarvinnslan hf. var rekin með 2. 507 milljóna kr. hagnaði fyrir skatta á árinu 2007. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er 2.738 milljónir kr. eða 27% af rekstrartekjum. Í tilkynningu um uppgjörið segir að árið 2007 var félaginu hagstætt. Afurðaverð á mjöli og lýsi var hátt í upphafi árs, en mjölverð lækkaði þegar leið á árið. Olíuverð var hátt á árinu. Markaðir fyrir frystar afurðir voru sterkir. Fyrirtækið sameinaðist Súlunni ehf. og Garðar Guðmundssyni ehf. Unnið var að hagræðingu á skipakosti félagsins og voru tvö skip seld, Beitir NK og Birtingur NK. Haldið var áfram að hagræða í fiskimjölsverksmiðjunum. Tæp 50 þúsund tonn af hráefni voru unnin til manneldis á síðasta ári sem er mesta magn sem farið hefur í gegnum frystihús félagsins á einu ári.Heimsmarkaðsverð á lýsi er hagstætt um þessar mundir og vísbendingar um að mjölverð muni styrkjast aftur þegar líður á árið. Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað sem er fyritækinu hagstætt þar sem tekjur þess eru í erlendri mynt. Loðnukvóti í ár var minni en væntingar stóðu til, mikil óvissa ríkti allt til loka vertíðar sem gerði allt skipulag erfitt.Fyrirtækið telur brýnt að auka rannsóknir á loðnustofninum. Í því skyni hefur verið fjárfest í búnaði fyrir skip félagsins sem nýst getur til rannsókna á honum. Ekki verður við það búið lengur að rannsóknir á loðnustofninum séu háðar útgerð tveggja skipa og sífelldar deilur standa um stýringu þeirra. Kolmunnakvótinn minnkaði töluvert á milli ára, en gott útlit er með veiði úr norsk íslenska og íslenska síldarstofninum. Niðurskurður á þorskstofninum kemur illa við rekstur bolfiskskipa félagsins. Þá segir að olíuverð hafi hækkað áfram á árinu og er orðið óbærilega hátt fyrir útgerðina.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira