Úrvalsvísitalan aldrei hækkað jafnmikið á einum degi 25. mars 2008 16:44 „Glæsilegar fréttir,“ segir Þórður Friðjónsson. MYND/GVA
Hlutabréf í Kauphöll Íslands hækkuðu umtalsvert í dag og enn fremur styrktist gengi krónunnar allnokkuð. Alls hækkaði úrvalsvísitalan um 6,16 prósent og stendur hún nú í 4.835 stigum. Hefur vísitalan aldrei hækkað jafnmikið á einum degi. Þórður Friðjónsson segir þetta glæsilegar fréttir. „Þetta eru glæsilegar fréttir,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar í samtali við Vísi. „Gengið fór hratt upp strax í morgun og eftir það sem á undan er gengið er þetta góður dagur.“ Aðspurður hvort hann telji að framhald verði á hækkunum segir Þórður að í Kauphöllinni spái menn ekki fyrir um slíkt. „Framhaldið helgast væntanlega af því sem gerist erlendis. Hlutabréf hafa hins vegar lækkað heldur meira hér á landi á árinu miðað við önnur lönd þannig að það gæti verið að þau komi þá hraðar til baka hér en annars staðar. En ég spái ekki fyrir um slíkt,“ segir Þórður Friðjónsson. Kaupþing banki hækkaði mest allra félaga, eða um rúm 9,4 prósent, en þar á eftir kom Marel sem hækkaði um 8,38 prósent og Færeyjabankinn hækkaði um 7,86 prósent. Enn fremur hækkaði Glitnir um 5,59 prósent og Landsbankinn um 5,28 prósent. Hins vegar lækkuðu bréf í Century Aluminum Company mest, eða um tvö prósent. Þessu til viðbótar styrktist gengi krónunnar um 2,85 prósent eftir mikla lækkunarhrinu undanfarna daga. Stendur gengisvísitalan í 152,5 stigum.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira