Ekki hægt að fullyrða um hvort botninum sé náð 17. mars 2008 17:09
Gylfi Magnússson, hagfræðingur og dósent við háskóla Íslands segir að Seðlabankinn hafi enga góða kosti í þeirri stöðu sem nú er uppi í íslensku fjármálalífi. Hann segir ekkert hægt að fullyrða um hvort botninum sé náð, það eina sem hægt sé að fullyrða um er að menn vita ekkert. Gylfi var gestur Sindra Sindrasonar í þættinum Í lok dags á Vísi í dag. Gylfi sagði afar líklegt að á næstunni fari að berast fréttir af fyrirtækjum og einstaklingum sem þola ekki þessa miklu lækkun sem verið hefur á markaði hér og því væri ljóst að sumir verði gjaldþrota. Aðspurður hvaða kostir væru í stöðunni fyrir Seðlabankann sagði hann að þeir væru fáir og engir þeirra góðir. „Staðan er þannig að atburðaráðsin er komin úr höndunum á Seðlabankanum," sagði Gylfi. Einnig kom fram í máli Gylfa að nú verði menn að fara að huga að því hvernig eigi að fara að því að borga skuldir þjóðarbússins en það væri ljóst að það taki „ár eða áratugi að greiða úr þessu klúðri." Gylfi sagði einnig að engin skammtímalauns fælist í því að henda krónunni núna. „En ég held að þessi krísa núna ýti mjög undir málstað þeirra sem halda því fram að það sé betra að vera hluti af stærri gjaldmiðli." Gylfi benti líka á að hluti vandans væri hve ungt hagkerfið væri hér á landi og hve starfsmenn fjármálafyrirtækjanna hafi verið óreyndir. Hann sagði þá lexíu vera dýrkeypta, „en vonandi verður kerfið sterkara en áður."
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira