Bankastjórarnir draga úr ferðinni New York og Björgvin Guðmundsson skrifa 13. mars 2008 19:56 Bankastjórarnir eru staddir í New York
Allir bankastjórar íslensku bankanna lögðu áherslu á hóflegan vöxt í framtíðinni í núverandi ástandi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum á ráðstefnu um íslenskt efnahagslíf og bankana í New York í dag. Lárus Welding forstjóri Glitnis sagði Ísland og Noreg þau svæði sem bankinn legði áherslu á. Sjávarútvegur og orkugeirinn væri ekki að minnka og þar væru sóknarfæri. Fólk sæktist eftir fiski og olíuverð færi hækkandi. Það gerði endurnýjanlegar orkuauðlindir hlutfallslega verðmætari. Hann líkti ástandinu nú um stundir eins og að keyra í gegnum snjóstorm. Íslendingar væru vanir því. Þegar illa viðraði færum við varlegar, hægðum á ferðinni og sumir settu jafnvel í fjórhjóladrifið. Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings lagði áherslu á aukinn hlut innlána í fjármögnun bankans. Þau væru ekki eins viðkvæm fyrir slæmum fréttum eins og margir héldu. Til dæmis hefði það ekki haft nein áhrif að Moody's færði niður lánshæfismat Kaupþings fyrir stuttu. Hann sagði Kaupþing hafa varið eigið fé sitt að fullu fyrir gengissveiflum krónunnar. Það hefði vissulega verið kostnaðarsamt en væri að borga sig núna. Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans sagði að bankinn hefði farið varlega og ekki fjárfest í undirmálslánum sem margir væru nú að súpa seyðið af. Lausafjárstaða bankans væri um 13 milljarðar bandaríkjadala og á árinu væri um einn milljarður dala á gjalddaga. Staða bankans væri því sterk. Sigurjón bætti því við að hann hefði aldrei upplifað þá tíð að reiðufé væri eins verðmætt og nú. Eignir hefðu fallið í verði frá því í september á síðasta ári og ofan á allt þetta væri olíuverð í hæstu hæðum. Allt þetta hefði mikil áhrif á og væri í raun kerfisbreyting í hagkerfinu.
Mest lesið Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira