Segja úrskurð fjármálaeftirlitsins óvandaðan og órökstuddan 12. mars 2008 13:51
Úrskurður Fjármálaeftirlitsins varðandi yfirtöku Sparisjóðs Siglufjarðar á Sparisjóði Skagafjarðar er óvandaður og órökstuddur, að mati hóps stofnfjárhafa í Sparisjóði Skagafjarðar, sem sendi frá sér yfirlýsingu fyrir stundu. Stofnfjárhafarnir segja að enn sé ósvarað fjölda fyrirspurna og alvarlegra athugasemda sem beint hafi verið til FME er varði lögmæti samrunaferlisins og meðferðar stofnfjárhluta og lögmæti aðalfundar sjóðsins. Í úrskurðinum segi hinsvegar „Fjármálaeftirlitinu bárust nokkrar ábendingar frá stofnfjáreigendum í Sparisjóði Skagafjarðar vegna fyrirhugaðs samruna og hefur öllum sem sendu inn ábendingar verið svarað skriflega" Stofnfjárhafarnir, sem standa að yfirlýsingunni, segja að þetta sé einfaldlega rangt. Þá hafi Fjármálaeftirlitið í tvígang verið beðið um gögn er varði samrunann og í bæði skiptin hafnað því. Í ljósi þeirra alvarlegu athugasemda sem komið hafi fram og þess langa tíma sem liðinn sé frá aðalfundi sparisjóðsins sé óviðunandi að FME skuli ekki færa haldbær rök fyrir niðurstöðu sinni. „Aðalfundur Sparisjóðs Skagafjarðar þann 13. ágúst síðastliðinn samþykkti yfirtöku Sparisjóðs Siglufjarðar á sjóðnum. Atkvæðaseðlar um yfirtökuna voru 96. Af þeim voru 60 stofnfjáreigendur í Skagafirði sem höfnuðu yfirtökunni en 36 sem samþykktu. Úrslitum réði að samstæða Kaupfélags Skagfirðinga hafði selt mestan hluta stofnfjár síns út úr héraði, virka eignarhluti, til valinna aðila," segir í yfirlýsingunni. Undir yfirlýsinguna skrifa, Sigurður Guðmundsson, Sverrir Magnússon, Gísli Árnason, Gunnar Rögnvaldsson, Sigurður Þorsteinsson og Bjarni Jónsson.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira