Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóðanna minnkuðu um 25 milljarða í janúar

Hrein eign lífeyrissjóðanna dróst saman um 25 milljarða króna í janúar eða um 1,5 prósent og var 1.622 milljarðar króna í lok mánaðarins.

Þetta kemur fram í tölum frá Seðlabanka Íslands sem birtar voru í gær. Til samanburðar má nefna að eignir lífeyrissjóðanna jukust um 0, prósent í janúar á síðasta ári og um 3,3 prósent í janúar árið 2006. Aukning hreinnar eignar síðustu 12 mánuði var 116,9 milljarðar króna eða 7,8 prósent samanborið við 19,5 prósent aukningu ári áður.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að ætla megi að lækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum og lækkun á gengi krónunnar skýri þessa lækkun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×