Auður Capital fjármagnar fyrsta fagfjárfestasjóð sinn 10. mars 2008 13:25 Halla Tómasdóttir er starfandi stjórnarformaður Auðar Capital. MYND/GVA
Auður Capital, fjármálafyrirtæki í eigu kvenna, hefur lokið fjármögnun á sínum fyrsta fagfjárfestasjóði sem nefnist AuÐur I. „Það gekk ótrúlega vel að fjármagna sjóðinn, sérstaklega í ljósi þess hve erfitt árferðið er. Þetta skýrist sennilegast af því hversu áhugavert og spennandi tækifærið er,“ sagði Kristín Pétursdóttir, forstjóri félagsins. Hún vildi þó ekki gefa upp nöfn þeirra fjárfesta sem að verkefninu koma. Kristín segir að félagið sé byrjað að skoða áhugaverða fjárfestingakosti, en ekkert sé ákveðið í þeim efnum. Segir í tilkynningu félagsins að mikill áhugi hafi verið fyrir sjóðnum og var heildarfjárhæð áskrifta 3,2 milljarðar króna. Alls tók 21 fjárfestir þátt í verkefninu og meðal þeirra eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins sem og aðrir stofnana- og fagfjárfestar. Fjárfestingarsjóðurinn mun nýta tækifæri sem felast í vaxandi mann- og fjárauð kvenna og verður fjárfest í starfandi fyrirtækjum sem hafa mikla vaxtarmöguleika. Sérstaklega verður horft til fyrirtækja í eigu eða undir stjórn kvenna og fyrirtækja sem bjóða upp á vörur eða þjónustu sem höfða sértaklega til kvenna, eins og segir í tilkynningunni.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira