Vídeóvél með 40 GB hörðum diski 6. mars 2008 12:50 Canon HG10 getur tekið upp allt að 15 klukkustundir á harða diskinn
Nú eru komin til sögunnar videó upptökuvél með hörðum diski og því ekki þörf á að nota spólur fyrir upptöku. Um er að ræða Canon upptökuvél, HG10, sem er með 40 GB hörðum diski. Það er því hægt að taka upp 15 klukkustundir af efni á vélina í háskerpugæðum. "Harði diskurinn er gríðarlega stór og því þarf fólk ekki að hafa miklar áhyggjur af geymsluplássi," segir Halldór J. Garðarsson vörustjóri Canon hjá Nýherja um HG10 upptökuvélina. "Það eina sem þarf að gera er að tengja vélina við tölvuna og hlaða myndefninu yfir með einstaklega einföldum hætti." Halldór segir að HG10 búi yfir fjölmörgum kostum til viðbótar, svo sem sérstökum sensorum sem draga úr suði við upptöku og síu sem tryggir skarpari myndir. "Þá er HG10 með sérstaka háskerpulinsu. Þá er gaman að nefna að hægt er að taka ljósmyndir, 3,1 MP myndir, sem eru vistaðar á sérstakt minniskort. Hægt er að taka upp video og kyrrmyndir á sama tíma með vélinni. Vídeómyndir og kyrrmyndir eru unnar sitt í hvoru lagi sem tryggir að þær koma út í góðum litum," segir Halldór. "Þetta er því á margan hátt einstök vél og því kemur ekki á óvart að hún skuli hafa unnið til verðlauna hjá hinum virta vef camcorderinfo.com. Þar er svokölluðu Instant AF fókuskerfi hrósað sérstaklega en það hjálpar við að tryggja að upptaka og myndir séu ávallt í fókus. Með því að nota tvo nema (sensora), einn fyrir hraða og annan fyrir nákvæmni, gerir Instant AF HD upptöku auðveldari og kemur í veg fyrir ,,blörraðar" myndir. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar tekið er upp í háskerpu því þá verður allt hökt í myndinni miklu næmara en ella með slíkri tækni. Með Instant AF fókuskerfi er hins vegar slíkt vandamál úr sögunni."
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira