Capello landaði sigri í fyrsta leik 6. febrúar 2008 21:59 Nordic Photos / Getty Images
Englendingar unnu 2-1 sigur á Svisslendingum í fyrsta leik liðsins undir stjórn Fabio Capello á Wembley í kvöld. Enska liðið bauð ekki upp á neinar flugeldasýningar í kvöld en slíkt verður tæplega uppi á teningnum hjá ítalska þjálfaranum. Það sem mestu máli skipti fyrir enska liðið var sigurinn og það eru stigin sem eru enskum efst í huga í upphafi stjórnartíðar Fabio Capello eftir útreiðina sem liðið fékk í nýafstaðinni undankeppni EM. Enska liðið beitti leikaðferðinni 4-5-1 og byrjaði leikinn frekar rólega -engu líkara en lærisveinar Capello væru nokkuð taugaóstyrkir. Capello gerði enda átta breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði leiknum sögulega gegn Króötum í haust. Nokkrar af þessum breytingum voru þó gerðar vegna meiðsla lykilmanna. Það var hinn skemmtilegi Mario Eggimann sem fékk fyrsta færið í leiknum fyrir Svisslendinga þegar hann skallaði framhjá enska markinu og það var svo Joe Cole sem var maðurinn á bak við fyrsta mark Englendinga. Hann lék laglega á varnarmann sinn á vinstri vængnum og lagði hann fyrir markið þar sem Jermaine Jenas gat ekki annað en skorað á markteignum á 40. mínútu. Þannig stóðu leikar í hálfleik, en Svisslendingarnir jöfnuðu metin á 58. mínútu með laglegu marki frá Eren Derdiyok, sem skoraði upp úr engu í sínum fyrsta landsleik fyrir Sviss. Enska liðið var þó ekki lengi að svara og varamaðurinn Shaun Wright-Phillips skoraði sigurmarkið aðeins fjórum mínútum síðar eftir laglegan undirbúning frá Steven Gerrard.
Enski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Sjá meira