Jafntefli í fyrsta leiknum á EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2008 17:26 Rússinn Alexey Kamanin reynir hér að stöðva Drasko Mrvaljevic frá Svartfjallalandi í leik liðanna í dag. Nordic Photos / AFP
Rússland og Svartfjallaland gerðu jafntefli, 25-25, í fyrsta leiknum á EM en leikurinn var gríðarlega spennandi allt til síðustu sekúndu. Svartfellingar byrjuðu betur í leiknum og komust snemma í 3-1 forystu og síðar 9-6 forystu. En Rússar skoruðu þá næstu þrjú mörkin í leiknum og var leikurinn í járnum eftir það. Svartfellingar voru þó með undirtökin í leiknum lengst af og komust tvívegis í tveggja marka forystu en staðan í hálfleik var 16-15, Svartfjallalandi í vil. Síðustu rúmu 20 mínúturnar var jafnt á öllum tölum en það var ekki fyrr en á 55. mínútu að Rússar náðu í fyrsta sinn forystu í leiknum, 24-23. Þá skoruðu hins vegar Svartfellingar næstu tvö mörkin í leiknum og voru með pálmann í höndunum þar til Andrey Starikh jafnaði metin þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Sannarlega óvænt úrslit í fyrsta leik mótsins og án efa mikil vonbrigði fyrir Rússa sem geta engu að síður þakkað fyrir stigið. Hjá Rússum var Eduard Koksharov markahæstur með átta mörk, þar af fjögur úr vítaköstum. Konstantin Igrapulo kom næstur með fjögur mörk. Alen Muratovic og Drasko Mrvaljevic skoruðu sjö mörk hver fyrir Svartfjallaland. Goran Stojanovic varði þrettán skot í marki Svartfellinga en markverðir Rússa samtals ellefu skot.
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Sjá meira