Áttum svo sannarlega erindi á þetta mót Elvar Geir Magnússon skrifar 14. janúar 2008 18:00 Patrekur var aðstoðarmaður Kristjáns Halldórssonar með B-landsliðið. „
Norðmennirnir voru eitthvað ósáttir með að Ísland væri að senda B-landslið til leiks á þessu móti. Tölurnar tala sínu máli og við sýndum það að við áttum alveg erindi á þetta mót," sagði Patrekur Jóhannesson, einn af sérfræðingum Vísis um EM í handbolta. Patrekur var í Noregi með B-landsliðinu sem tók þátt í Posten Cup æfingamótinu. „Við unnum Portúgali og áttum að leggja aðallið Ungverja að velli á þessu móti. Plúsarnir voru alveg miklu fleiri en mínusarnir og strákarnir fengu þarna frábæra reynslu. Stemningin var mikil í hópnum og ljóst að þetta hefur bara jákvæð áhrif," sagði Patrekur. „Leikur okkar gegn Ungverjalandi var hreint frábær ef undan er skilinn þessi fimm mínútna kafli undir lokin þar sem okkur tókst ekki að skora. Við vorum að spila virkilega vel fram að því." Ísland tapaði með eins marks mun fyrir liði Ungverja en vann síðan Portúgal örugglega með fimm marka mun. „Við bjuggum okkur undir erfiðan leik gegn Portúgal sem hafði tapað illa fyrir Noregi daginn áður. Við vissum því að þeir myndu mæta dýrvitlausir til leiks. Í þeim leik voru allir að skila sínu og Portúgalarnir héldu neyðarfund eftir leikinn," sagði Patrekur. „Lokaleikurinn gegn Norðmönnum var mjög góður hjá okkur í 30 mínútur. Dómgæslan hallaði á okkur og við fengum brottvísanir fyrir litlar sakir. Ég talaði við félaga mína hjá norska liðinu sem tóku undir þetta og vorru hissa því þeir þurftu ekki á þessari hjálp að halda." „Í seinni hálfleiknum keyrðu Norðmenn síðan framúr og Steinar Ege lokaði markinu. Þegar á heildina er litið voru jákvæðu punktarnir hjá okkur á mótinu um 95% á móti aðeins 5% neikvæðu." „Þetta lið æfði bara saman eina helgi fyrir þetta mót og flestir leikmenn voru að spila saman í fyrsta sinn. Þetta heppnaðist því mjög vel miðað við allt," sagði Patrekur sem telur að þetta verkefni með B-landsliðið skili miklu.
Mest lesið Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Sport Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Fótbolti Heimsmeistarinn í beinni á Vísi Sport Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn